Úrslitaviðureign Útsvarsins

Sveitarfélagið Ölfus mun keppa til úrslita í Útsvarinu föstudaginn 18. maí nk. gegn Ísafjarðarbæ.

Viðureignin hefst kl. 20:00 og er eins og venjulega öllum opinn. Útsendingin fer fram í Efstaleiti 1, sjónvarpshúsinu og er mæting klukkan 19:40.

Ölfus hefur aldrei komist eins langt í Útsvarinu og því mikilvægt að við sýnum liðinu okkar góðan stuðning með því að fylla sjónvarpssalinn.

Margir tóku eftir því að liðið okkar mætti í fallegum bolum, merktum Ölfus og með setningunni okkar allra ,,Hamingjan er hér!“ Vegna fjölda fyrirspurna og áskorana var ákveðið að láta framleiða nokkur stykki fyrir íbúa sveitarfélagsins. Sala á bolunum mun fara fram á bókasafninu og kosta þeir 2.000 kr. Um takmarkað magn er að ræða.