Jólahátíð 1. desember

Þann 1.desember nk. verður jólahátíð í og við Ráðhúsið.

Jólamarkaður Slysavarnardeildarinnar Sigurbjargar verður í Versölum frá kl. 17:00-20:00.

Lína langsokkur leikur við krakka í Ráðhúsinu kl. 17:00 og á sama tíma hefst keppni í piparkökuskreytingum.

Kl.18:00 verður kveikt á jólatrénu fyrir utan Ráðhúsið, jólasveinar mæta á svæðið, lúðrasveitin og barnakórinn taka nokkur lög og að venju verða Kiwanismenn með heitt kakó fyrir alla.

Kl.19:00 mætir svo Birgitta Haukdal í Ráðhúsið, hún les upp úr nýrri bók sinni og syngur nokkur jólalög. Úrslit í piparkökuskreytingakeppninni verða tilkynnt að því loknu.

Dagskrá lýkur um kl. 20:00

Slysavarnadeildin Sigurbjörg í samstarfi við starfsfólk sveitarfélagsins sá um að skipuleggja viðburðina.