Afreks – og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss

Mynd: Baldvin Agnar Hrafnsson

Íþrótta – og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir styrki úr Afreks – og styrktarsjóði Sveitarfélagsins Ölfuss. Úthlutun styrkja fer fram í nóvember nk.

Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í Sveitarfélaginu Ölfusi fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig skapa sem best tækifæri til að stunda íþrótt sína í heimabyggð eða annarstaðar eftir atvikum. Einnig eru veittir styrkir vegna menntunar þjálfara/leiðbeinenda.

Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu eða á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss. Umsóknir um styrki úr sjóðnum þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Ráðhúsinu Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, fyrir 1. nóvember næstkomandi, merkt: AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS – UMSÓKN.

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta – og æskulýðsfulltrúi, í síma 480 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is

Sveitarfélagið Ölfus
Íþrótta – og æskulýðsnefnd