Auður Magnea Sigurðardóttir og Elísabet Bjarney Davíðsdóttir sigruðu söngvakeppni Félagsmiðstöðvarinnar Svítunnar sem haldin var fyrr í kvöld.
Sungu þær lagið Engillinn minn sem er frumsamið lag eftir Elísabetu og spilaði Auður Magnea undir á ukulele.
Munu þær taka þátt í USSS fyrir hönd Svítunnar en það er undankeppni söngvakeppni Samfés á Suðurlandi.
Við hjá Hafnarfréttum óskum Auði og Elísabetu innilega til hamingju.