Betur fór en á horfðist þegar slys var við bjargið utan við Þorlákshöfn um hádegisbil í dag þegar kona féll þar niður en endaði sem betur fer ekki í sjónum. Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út en tilkynning barst þess efnis að fólk væri í sjónum við björgin í Þorlákshöfn.
Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu segir að einn einstaklingur hafi verið slasaður en mikil ísing var á vettvangi.
„Björgunarsveitarfólk þurfti að síga niður til einstaklingins og hlúa að honum. Hann var svo hífður upp um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar um klukkan eitt. Í fyrstu var talið að annar aðili væri í sjónum og voru bjögunarbátar settir á flot og hófu strax leit, einnig voru kallaðir út fleiri björgunarbátar frá Suðurnesjum ásamt leitarhópum frá höfuðborgarsvæðinu.“
Í kjölfarið var staðfest að enginn hafi verið í sjónum og lenti þyrla Landhelgisgæslunnar við Landspítalann í Fossvogi um klukkan eitt samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni.