Garðyrkjuskólinn verður opinn fyrir gesti og gangandi á 80 ára starfsafmæli skólans. Fullt af skemmtilegum viðburðum og ferskt grænmeti til sölu!
Það er nemendum og starfsfólki Garðyrkjuskóla Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi, sönn ánægja að bjóða þér/ykkur í opið hús á sumardaginn fyrsta.
Skólinn er opinn frá kl. 10 til 17. Sumarið er komið í garðskálanum og hægt er að heimsækja hitabeltið í bananahúsinu og pottaplöntusafninu. Verkefni nemenda í skrúðgarðyrkju verða til sýnis í verknámshúsinu og við inngang skólans. Kaffiveitingar og markaðstorg með m.a. glænýja uppskeru af hnúðkáli, grænkáli og gulrótum. Ýmiss konar afþreying er í boði fyrir börnin, s.s. ratleikur, andlitsmálun, sá salatfræjum og taka með heim ofl. ofl. Ketilkaffi hitað úti yfir eldi og krökkum boðið að grilla sykurpúða. Hátíðardagskrá verður kl. 13:30 – 14:45 (sjá neðar) þar sem afhent verða Garðyrkjuverðlaun LbhÍ, Umhverfisverðlaun Hveragerðis og Umhverfisverðlaun Ölfuss.
Hátíðardagskrá í Garðyrkjuskóla LbhÍ á Reykjum í Ölfusi 25. apríl 2019 kl. 13:30—14:45
Fundarstjóri: Björgvin Örn Eggertsson
13:30 – 13:35 Ávarp fundarstjóra
13:35 – 13:40 Setning – Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor LbhÍ
13:40 – 14:00 Garðyrkjuverðlaun LbhÍ 2019 –
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson
14:00 – 14:10 Umhverfisverðlaun Hveragerðis –
Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir
14:10 – 14:20 Umhverfisverðlaun Ölfuss –
Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir
14:20 – 14:30 Landvernd afhendir Grænfána til Garðyrkjuskólans
Katrín Magnúsdóttir verkefnastjóri Skóla á grænni grein
14:30 – 14:35 Ávarp formanns Sambands garðyrkjubænda
Gunnar Þorgeirsson
14:35 – 14:45 Slit – Guðríður Helgadóttir, staðarhaldari á Reykjum