Vikulegar ferðir milli Danmerkur og Þorlákshafnar

Smyril Line, sem á og rekur Mykines, hefur fest kaup á nýrri vöruflutningaferju sem mun hefja áætlunarsiglingar um miðjan janúar 2020 milli Þorlákshafnar og Hirtshals í Danmörku með viðkomu í Færeyjum. Ferjan, sem fær nafnið Akranes, er 10.000 tonn og getur tekið 100 vöruflutningavagna í hverri ferð.

„Með tilkomu nýju ferjunnar opnast nýir möguleikar fyrir inn- og útflytjendur á Íslandi. Annars vegar styttum við flutningstímann fyrir innflutning frá Danmörku og Færeyjum til Íslands töluvert og hins vegar bjóðum við upp á nýja útflutningsleið, t.d. fyrir fisk, um Danmörku til Evrópu,“ segir Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi.

Ný inn- og útflutningsleið um Danmörku
„Við siglum vikulega frá miðjum janúar 2020 milli Þorlákshafnar og Hirtshals á Jótlandi, þangað sem Norræna siglir líka, með viðkomu í Færeyjum. Farið verður frá Danmörku á föstudagseftirmiðdegi og komið til Íslands á mánudegi og er ég spennt að sjá hvernig þessari nýju inn- og útflutningsleið verður tekið, bæði fyrir fisk frá suðvesturhorninu í gegnum Danmörku til Evrópu og allskyns inn- og útflutning til og frá Skandinavíu og meginlandinu.“

Nýja ferjan fær nafnið M/V Akranes og bætist við fjögurra skipa flota Smyril Line þann 20. desember 2019. Hin skipin eru Norræna, Hvítanes, Eystnes og Mykines. Akranes er systurskip Mykines, sem hefur reynst mjög vel í siglingum milli Þorlákshafnar og Rotterdam.

Lyftistöng fyrir bæði höfnina og sveitarfélagið
„Við höfum unnið markvisst að því að efla siglingar til og frá Þorlákshöfn og áætlunarferðir Akranes verða enn frekari lyftistöng fyrir bæði höfnina og sveitarfélagið enda aukast umsvifin við höfnina enn frekar og þar með líka bæði störf og afleidd atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfus.

„Þorlákshöfn er í dag orðin lykilhöfn í flutningum á sjó til og frá Evrópu. Til að styðja við þessa þróun höfum við gert miklar endurbætur á hafnaraðstöðunni og þær framkvæmdir nýtast okkur í þessu vaxtarskrefi enda notar nýja ferjan sömu aðstöðu og Mykines. Þá eigum við tilbúnar lóðir á hafnarsvæðinu fyrir aukna starfsemi. Við höfum þá trú að á komandi árum muni inn- og útflytjendur leggja aukna áherslu á skemmri siglingu til að tryggja betur ferskleika vörunnar og draga úr kolefnisspori vegna flutninga en siglingin til og frá Evrópu tekur hátt í sólarhring skemmri tíma þegar siglt er hingað miðað við Faxaflóann.“

Tekur 100 vöruflutningavagna
Akranes, sem bar áður nafnið Bore Bank, var byggt árið 1998 í UMOE skipasmíðastöðinni í Noregi. Skipið er 138 metra langt, 23 metra breitt, 10.000 tonn og tekur 100 vöruflutningavagna í hverri ferð. Það var áður í eigu finnska skipafélagsins Bore, sem er hluti af Spliethoff samstæðunni og var þá í siglingum á Eystrasaltinu. Skipið verður skráð í Færeyjum og verða 24 í áhöfn.