Ert þú með hugmynd að skemmtilegu verkefni?

Sveitarfélagið Ölfus leggur áherslu á aðkomu bæjarbúa að stjórnun sveitarfélagsins.  Við leitum því til ykkar eftir allskyns hugmyndum, stórum sem smáum, varðandi uppbyggilegar framkvæmdir sem talið er að geti aukið búsetugæði í Ölfusinu.

Er þetta í annað skiptið sem sveitarfélagið óskar eftir hugmyndum frá íbúum og í fyrra komu margar áhugaverðar hugmyndir fram sem ákveðið var að framkvæma. Sem dæmi:

  • Lagt til að sveitarfélagið myndi fjárfesta í ærslabelg og var það gert í fyrra en hann er staðsettur við Félagsmiðstöðina Svítuna.
  • Ábending kom um að snjómokstur á gangstéttum þyrfti að endurskoða og voru því ferlar þar að lútandi endurskoðaðir.
  • Ábendingar kom um að hálkuvörn þyrfti að bæta og keypti sveitarfélagið því saltdreifara.
  • Tillaga kom um að betra væri að færa upplýsingaþjónustu ferðamanna úr bókasafninu og út í íþróttahúsi og er verið að vinna í því núna.

Það er því ljóst að þarna er tækifæri fyrir íbúa til að koma sínum hugmyndum á framfæri og hafa áhrif. Íbúar eru því hvattir til að senda inn hugmyndir eða ábendingar og nánari útfærslur á sínum hugmyndum.

Nánari upplýsingar veitir Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, 

Frestur til að skila inn tillögum að verkefnum er til 10. mars 2020 og umsóknir skulu berast með tölvupósti á netfangið sandradis@olfus.is , á Bæjarskrifstofur Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn eða í gegnum ábendingavef sveitarfélagsins http://mini.loftmyndir.is/dvergur/clients/ath_olfus/