Þórsarar unnu góðan útisigur á Haukum fyrr í kvöld 100-116.
Larry Thomas og Styrmir Snær Þrastarsson voru frábærir í kvöld og skoruðu samtals 68 stig fyrir Þórsara og voru valdir menn leiksins.
Tölfræði Þórsara: Larry Thomas 36/7 fráköst/5 stoðsendingar, Styrmir Snær Þrastarson 32/5 fráköst, Callum Lawson 20/6 fráköst, Davíð Arnar Ágústsson 8, Halldór Garðar Hermannsson 7/6 stoðsendingar, Adomas Drungilas 7/7 fráköst, Ragnar Örn Bragason 4, Emil Karel Einarsson 2/4 fráköst.
Spilað er þétt þessa dagana, en næsti leikur er strax á sunnudaginn á móti Keflavík í Icelandic Glacial höllinni og hefst hann kl. 18:15. Keflavík er á toppi deildarinnar en Þórsarar í öðru sæti.
Við minnum á appið Stubb til að ná sér í miða.
Fyllum leyfileg sæti og munum grímurnar.