Smyril Line byggja stórt vöruhús í Þorlákshöfn

Fyrirtækið Smyril line mun auka umsvif sín í Þorlákshöfn mjög mikið á næstunni og byggja stórt vöruhús fyrir vöruflutninga til og frá Evrópu. Fjölga þarf starfsfólki í bænum vegna þessa en vöruhús fyrirtækisins er í dag í Hafnarfirði, en nú hefur verið ákveðið að flytja það í Þorlákshöfn. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV í gær.

Linda Björk Gunnlaugsdóttir.

Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi segir ástæðu flutninganna tvíþætta. „Fyrir það fyrsta koma skipin okkar hingað. Svo er það umferðin og dreifingin héðan, við erum með mikið af viðskiptavinum á Suðurlandi. Þannig að þá getum við afhent hér eða dreift héðan og svo inn í höfuðborgina, þetta er svo stutt. Ef maður tekur miðbæinn inn í Hafnarfjörð og miðbæinn hingað inn í Þorlákshöfn, þá eru kílómetrarnir kannski aðeins fleiri, en mínúturnar kannski ekkert miklu fleiri, út af umferð. Þannig að við erum að létta á umferðinni í höfuðborginni með því að gera þetta.“ segir Linda Björk.

Stefnt er að því að vöruhúsið verði tilbúið eftir tvö ár en það verður um 2.500 fermetrar. Smyril line flytur mikið af ferskum fiski til Evrópu og húsið mun meðal annars nýtast fyrir þá starfsemi. Þá segir Linda að staðsetning Þorlákshafnar sé einstaklega hentug, enda sé styttra að sigla þaðan til Evrópu en frá Reykjavík.

„Það tekur átta tíma að sigla fyrir Reykjanesið og þá 16 tíma fram og til baka ef við hugsum það þannig. Þannig að með þessu getum við verið með mjög stuttan „transit-tíma“, við erum einhvern 2,5 sólarhring að sigla til Evrópu með ferskvöruna. Og svo kemur auðvitað ferskvara með okkur hingað til Íslands.“

Fjölga þarf starfsfólki í Þorlákshöfn með nýja vöruhúsinu. „Við höfum fjölgað störfum hérna undanfarin fjögur ár, það eru fjögur ár síðan við byrjuðum að sigla hingað. Við höfum farið frá einum upp í tíu og á háannadögunum koma fleiri inn. Þannig að við búumst við töluverðri fjölgun með vöruhúsinu,“ segir Linda að lokum.