Það er kominn 17. júní! – Dagskráin í dag

Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní, er runninn upp og af því tilefni verður glæsileg dagskrá í Þorlákshöfn í dag.

Kl. 11:00 – Leikir í Skrúðgarðinum

  • Blaðrar búa til blöðrudýr
  • Sirkussýning fyrir þau yngstu

Kl. 13:10 – Skrúðganga frá grunnskólanum um bæinn til hátíðarsvæðis í Skrúðgarði

KL. 13:30 – Snillingarnir Gunni og Felix syngja og skemmta

Kl. 14:00 – Hátíðardagskrá í Skrúðgarðinum

  • Ávarp forseta bæjarstjórnar
  • Hátíðarræða útskriftarnema
  • Lúðrasveit Þorlákshafnar
  • Fjallkonan les upp ljóð
  • Aðalbjörg syngur, meðleikarar Halldór og Sæli.

Kl. 14:30 – Hátíðarkaffisala í Versölum
Umsjón: Körfuknattleiksdeild Þórs

Kl. 15:00 – Fjölskyldufjör í Skrúðgarðinum

  • Körfuþrautir og 3 á 3 á körfuvellinum
  • Börnum boðið á hestbak
  • Hoppukastalar

Kl. 16:30 BMX Brós sýna listir sínar á brettasvæði grunnskólans
Einnig fá áhugasamir fræðslu um útfærslu á ýmsum þrautum.

Kl. 17:00 – Söguferð og söngur á götuhornum
Rölt um bæinn með Ágústu Ragnars og rifjar hún upp sögu bæjarins og skemmtileg augnablik. Með í för er Rúnar Gunnarsson með gítarinn og tökum við lagið saman á nokkrum götuhornum. Lagt af stað frá Skrúðgarðinum.