Rafmagnslaust vegna vinnu við götuskápa

Rafmagnslaust verður í Ölfusi, föstudaginn 25. júní frá kl. 8 til 10 vegna vinnu við götuskápa. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar.

Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Suðurlandi í síma 528 9890 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof.