Húsnæðissamvinnufélagið Elliði auglýsir til sölu búseturétt á Sunnubraut

Húsnæðissamvinnufélagið Elliði auglýsir til sölu búseturétt í parhúsi sem staðsett er í byggðakjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Um er að ræða Sunnubraut 5 í Þorlákshöfn

Til sölu er búseturéttur í 2ja svefnherbergja íbúð í parhúsi. Í heildina er eignin 124,3 fm. og þar af er bílskúrinn 28,6 fm. Húsið var byggt árið 2004 og er það staðsett í rólegum og notalegum byggðakjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Búseturétturinn kostar 5.000.000 kr. og mánaðargjöldin eru 157.698 kr. og hækka m.v. vísitölu neysluverðs. Innifalið í því er allt nema rafmagn, hiti og fasteignagjöld. Aldursskilyrði 60+.

Bæði félagsmenn og utanfélagsmenn geta keypt búseturéttinn en aldursskilyrði eru 60 ára og eldri. Við úthlutun verður horft til þess hve lengi einstaklingar sem sækja um hafa verið í félaginu. Ef enginn félagsmaður sækir um verður búseturétturinn seldur til utanfélagsmanna.

Íbúðin er laus til úthlutunar frá og með 1.október 2021 og skulu umsóknir berast félaginu fyrir 6.september nk.

Þeir sem hafa áhuga á að kaupa búseturéttinn skulu senda inn umsóknir á Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarberg 1, 815 Þorlákshöfn eða á netfangið sandradis@olfus.is. Nánari upplýsingar veitir Sandra Dís Hafþórsdóttir í síma 480-3800 eða sandradis@olfus.is