Óska eftir ábendingum frá íbúum vegna umferðaröryggisáætlunar

Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir ábendingum frá íbúum sveitarfélagsins vegna gerðar nýrrar umferðaröryggisáætlunar.

Vinna við áætlunina er hafin og verið er að skipa samráðshóp með helstu hagsmunaaðilum sveitarfélagsins er varða umferðaröryggismál.

Stefnt er að því að samráðshópinn munu skipa fulltrúar frá grunnskóla, leikskóla, foreldrafélagi, lögreglu, eldri borgurum, Samgöngustofu, Vegagerðinni og skipulagsfulltrúa og Verkís sem stýrir verkefninu.

Umferðaröryggisáætlun felur í sér gerð stöðumats á umferðaröryggi sveitarfélagsins, slysagreiningu, markmiðasetningu, mótun aðgerðaáætlunar og forgangsröðun verkefna. Tilgangur umferðaröryggisáætlunar er að auka vitund forráðamanna sveitarfélaga og íbúa um umferðaröryggi.  Virk þátttaka íbúa er talin mjög gagnleg og breitt samráð hagsmunaaðila mikilvægt.

Stefnt er að því að halda íbúafund í byrjun næsta árs þar sem helstu niðurstöður umferðaröryggisáætlunar sveitarfélagsins verða kynntar og íbúar fá tækifæri til að koma með athugasemdir við áætlunina.

Íbúar eru hvattir til að taka virkan þátt í mótun og gerð áætlunarinnar með því að senda inn ábendingar fyrir 8. nóvember 2021 á netfangið skipulag@olfus.is merkt umferðaröryggisáætlun eða í móttöku bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn.