Styrkumsóknir í lista- og menningarsjóð Ölfuss

Mynd: Baldvin Agnar Hrafnsson

Markaðs- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði Ölfuss.

Markmið sjóðsins er:

  • Að efla hverskonar menningarstarfsemi og list í sveitarfélaginu.
  • Að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði menningarmála er tengjast sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.

Upplýsingar um reglur sjóðsins er að finna á vef sveitarfélagsins. Hægt er að nálgast umsóknarblöð á skrifstofu eða vef sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er til 13. nóvember 2017 og skulu umsóknir berast til markaðs- og menningarfulltrúa á skrifstofu sveitarfélagsins, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn merkt „Lista- og menningarsjóður Ölfuss“ eða í tölvupósti annamargret@olfus.is

Nánari upplýsingar veitir Anna Margrét Smáradóttir, markaðs- og menningarfulltrúi í síma 480 3808 eða tölvupósti annamargret@olfus.is.

Markaðs- og menningarnefnd Ölfuss