Sveinbjörn nýr þjálfari meistaraflokks Ægis

Knattspyrnufélagið Ægir hefur samið við Sveinbjörn Jón Ásgrímsson um að þjálfa meistaraflokk karla næstu tvö tímabil ásamt því að sinna starfi yfirþjálfara yngri flokka. Frá þessu er greint í tilkynningu félagsins.

„Sveinbjörn er fæddur 1968 og er uppalinn Þorlákshafnarbúi. Hann átti farsælan knattspyrnuferil og spilaði meðal annars með Ægi, Hvöt, Tindastól og Skallagrím á árum áður. Hann sneri sér síðan að þjálfun og hefur komið að þeim störfum víða og líka hér í Þorlákshöfn.“

Sveinbjörn var aðstoðarþjálfari Ægis á síðasta tímabili og þá þjálfaði hann yngri flokka og meistaraflokk Ægis árin 2007-2010.