Þórsarar unnu sannfærandi 102-79 sigur gegn Grindavík fyrr í kvöld og komust um leið í 2:1 í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta.
Kyle Johnson var stigahæstur hjá Þór með 29 stig og Glyn Watson skoraði 22.
Næsti leikur fer fram á föstudaginn í Grindavík og hvetjum við alla til að fjölmenna á leikinn og styðja okkar menn til sigurs.