Þór Þorlákshöfn hefur samið við kanadíska framherjann Alonzo Walker um að spila með liðinu á næstu leiktíð.
Alonzo, sem er 26 ára, lék á síðustu leiktíð fyrir Privevidza í Slóvakíu þar sem hann var með þrettán stig, ellefu fráköst og tvær stoðsendingar að meðaltali í leik.
Hann kemur úr Portland State háskólanum og hefur síðan spilað sem atvinnumaður í Georgíu og síðast í Slóvakíu.