Safna fyrir aðgerð Svanhildar í Þýskalandi

Svanhildur Ósk Guðmundsdóttir er fædd árið 1984, uppalin og búsett í Þorlákshöfn. Foreldrar hennar eru Ingibjörg Bjarney Georgsdóttir og Guðmundur Garðarsson. Hún á tvær dætur, 16 ára og 12 ára. Hún hefur erfiða og langa veikindasögu á bakinu en árið 2021 greindist Svanhildur með nokkrar gerðir af æðaþjöppunarheilkennum (compression syndromes). Hún greindist með MALS (Median Arcuate Ligament Syndrome), May-thurner syndrome, Nutcracker syndrome, Pelvic congestion ásamt því að vera með EDS (Ehlers-Danlos syndrome) og fljótandi nýru (migrating kidneys).

Þar sem lítil kunnátta er hér á landi á þessum sjúkdómum gekkst Svanhildur undir aðgerð í Þýskalandi 2021 sem heppnaðist vel. Þetta var fyrsta skrefið í vegferð hennar að bata. Enn glímir hún þó við vandamál sem valda henni miklu verkjaástandi, erfiðleikum með að nærast sökum verkja og einkenna frá meltingarvegi, miklum einkennum frá taugakerfi, t.d. miklum pirringi, skjálfta, svima, heilaþoku ásamt minnkandi styrk í fótum og höndum og þarf hún stundum að notast við hjólastól.

Svanhildur hefur lengi beðið eftir því að komast til Þýskalands í aðra aðgerð en Sjúkratryggingar Íslands hafa synjað umsókn hennar um fjárhagsaðstoð í tvígang. Hún stendur því frammi fyrir því að þurfa að greiða aðgerðina sjálf. Áætlaður aðgerðarkostnaður eru 5,5 milljónir fyrir utan ferðakostnað og uppihald.

Nú er svo komið að Svanhildur þarf að komast í aðgerðina sem fyrst til að hún eigi möguleika á betri lífsgæðum. Stefnt er að aðgerðinni í sumar. Þar mun Svanhildur gangast undir æðaígræðslu (skipta út celiac æðinni vegna mikilla þrenginga), fjarlægja mikið magn af örvef í kringum celiac æðina og hengja upp bæði nýrun til að auka blóðflæði.

Við fjölskylda Svanhildar höfum því ákveðið, með hennar samþykki, að fara af stað með söfnun fyrir hana og höfum stofnað styrktarreikning í hennar nafni. Við þökkum öllum þeim sem sjá sér fært að styrkja Svanhildi og munum að margt smátt gerir eitt stórt!

Ef söfnun þessi gengur vel og næst að safna fyrir aðgerðarkostnaði mun það sem umfram safnast gefast til góðgerðarmála. Ef einhverjar spurningar vakna varðandi söfnunina má endilega hafa samband við:

Katrín Ósk Hannesdóttir; katrinoskh@gmail.com, sími: 869-1957 eða Guðmunda Helga Guðmundsdóttir; gudmunda.h@gmail.com, sími: 896-2674.

Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Rakel Guðmundsdóttir

Styrktarreikningur Svanhildar
Kennitala: 260984-2689
Reikningsnúmer: 0123-15-057954
Áætlaður aðgerðarkostnaður = 5,5 milljónir