Pablo Hernandez til Þórsara

Þór Þorlákshöfn hefur samið við Pablo Hernandez um að spila með liðinu á næstu leiktíð. Frá þessu greina Þórsarar á Facebook síðu sinni.

Pablo er 25 ára og kemur frá Svartfjallalandi. Hann spilaði síðast á Íslandi tímabilið 2019/20 með Þór Akureyri og skoraði þar 15,1 stig og tók 7,6 fráköst, ásamt því að vera með 47,5% þriggja stiga nýtingu.

„Pablo er fjölhæfur framherji sem hefur spilað í silfur og gull deildinni á Spáni síðustu tvö tímabil. Það er mikil tilhlökkun að fá Pablo til okkar í Hamingjunu,“ segir að lokum í tilkynningu Þórsara.