Emilía Hugrún með tónleika í Þorlákskirkju

Emilía Hugrún heldur sína fyrstu tónleika í Þorlákskirkju þriðjudagskvöldið 26. júlí næstkomandi.

Eins og mörgum er kunnugt sigraði Emilía Hugrún söngkeppni framhaldsskólanna fyrir hönd FSu sem haldin var í vor og eflaust margir sem bíða spenntir eftir því að heyra meira frá henni.

Með Emilíu Hugrúnu leikur Tómas Jónsson á hljómborð en á tónleikunum ætla þau að flytja uppáhalds lög Emilíu Hugrúnar. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er miðaverð 3000 kr. Miðasala er á Tix.is og við inngang á meðan húsrúm leyfir.