Spænskur leikstjórnandi til liðs við Þór

Þór Þorlákshöfn hefur samið við Spánverjann Josep Pérez um að leika með liðinu í Subway deildinni og undankeppni FIBA Europe cup sem hefst í lok september næstkomandi.

Josep er 29 ára bakvörður sem hefur spilað megnið af sínum ferli í næst efstu deildinni á Spáni, Leb Gold, nú síðast með liðinu Afanion CB Almansa. Þá var Josep Pérez mikilvægur leikmaður í yngri landsliðum Spánar.