Hafnarfréttir gefa lesendum nú kost á því að velja Ölfusing ársins 2022. Sendu inn tilnefningu á frettir@hafnarfrettir.is og láttu fylgja með hvers vegna þú velur viðkomandi einstakling.
Skilafrestur tilnefninga er til 31. desember og aðeins er tekið tillit til tilnefninga sem berast á netfangið frettir@hafnarfrettir.is.
Úrslitin verða kunngjörð 6. janúar 2023 hér á vef Hafnarfrétta.