Írena Björk til liðs við Fram

Írena Björk Gestsdóttir hefur gengið til liðs við meistaraflokk kvenna í knattspyrnu hjá Fram. Um er að ræða samning til tveggja ára.

Írena Björk er 24 ára gömul og þrátt fyrir ungan aldur hefur hún mikla reynslu úr Lengjudeildinni og hefur spilað tæplega 50 leiki í deildinni með Grindavík þar sem hún hefur verið síðustu fjögur ár. Í það heila á hún rúmlega 100 leiki í meistaraflokki.

Írena Björk spilar sem hægri bakvörður en getur hæglega spilað báðar bakvarðastöður því hún er nánast alveg jafnfætt. Í frétt Fram um samninginn er hún sögð ,,sterkur karakter með mikla leiðtogahæfileika og er mikill liðsstyrkur fyrir komandi átök í Lengjudeildinni.“

Hafnarfréttir óska Írenu Björk innilega til hamingju og það verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni.