Glugga- og hurðaverksmiðja í Þorlákshöfn

Fram kemur í Viðskiptablaðinu í dag að Kambar áætli að byggja glugga- og hurðaverksmiðju í Þorlákshöfn. Fyrirtækið var stofnað í byrjun árs 2022 þegar fyrirtækin Samverk glerverksmiðja, Trésmiðjan Börkur, Gluggasmiðjan Selfossi og Sveinatunga sameinuðust í eitt fyrirtæki.

„Við sáum þarna mikið tækifæri til hagræðingar og lækkun á kolefnisspori í byggingariðnaðinum með því að sameina öll þessi fyrirtæki. Með því að sameina alla okkar framleiðslu í glugga- og hurðasmíði á einum stað, með einni fullkomnustu verksmiðju í Evrópu, þá náum við bæði þeim árangri að lækka kolefnissporið verulega fyrir byggingariðnaðinn og að vera með íslenska framleiðslu á algjörlega samkeppnishæfu verði gagnvart innfluttri vöru,“ segir Karl Wernersson, stofnandi Kamba.

Staðsetning verksmiðjunnar í Þorlákshöfn var valin til að kolefnissporið yrði sem minnst. Stutt er í vöruflutningahöfn fyrir aðföng verksmiðjunnar og viðurinn sem er notaður er valinn úr nytjaskógum í Skandinavíu. Í tilkynningu segir að minna kolefnisspor verði fyrir byggingariðnaðinn þar sem Kambar muni flytja hráefnið til landsins og notast við íslenskt rafmagn í framleiðsluferlinu.

„Við erum stöðugt að þróa okkar vörur eingöngu fyrir íslenskan markað og sérhæfum okkur því í að gera betri vörur sem þola þessar erfiðu veðuraðstæður sem við búum við og henta fyrir okkar byggingaaðferðir. Það verður því bylting á markaðnum þegar við getum líka farið að keppa í verði við innfluttar vörur með okkar vöru,“ segir Vignir Guðmundsson, sérfræðingur Kamba í gluggaframleiðslu.© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Þorlákshöfn er að vaxa hratt á forsendum vaxandi atvinnulífs og við erum mjög stolt af því að Kambar skyldu hafa valið Þorlákshöfn sem staðsetningu fyrir verksmiðju sína. Ekki eingöngu er þetta öflugur atvinnurekandi með löngu viðurkennda vöru og þjónustu heldur verður húsnæðið hennar eitt af kennileitum bæjarins því um stærsta hús Þorlákshafnar verður að ræða. “ Segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss.

(Sjá frétt Viðskiptablaðsins)