Verkfallsboðun félaga í BSRB samþykkt

Yfirgnæfandi meirihluti félaga BSRB í sex sveitarfélögum, Hafnafirði, Reykjanesbæ, Árborg, Ölfus, Hveragerði og Vestmannaeyjum samþykkti boðun verkfalls í atkvæðagreiðslum sem lauk á hádegi í gær.

Verkfallsboðun þessi nær til starfsfólks leik- og grunnskóla, frístundaheimila, mötuneyta og hafna í sveitarfélögunum.

„Félagsfólk okkar virðist hafa verið löngu tilbúið í verkföll, fólk ætlar ekki að láta þetta misrétti yfir sig ganga ofan á allt og er tilbúið til að leggja niður störf til að knýja fram réttláta niðurstöðu“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um kosninguna. „Sveitarfélögin hafa þó enn tækifæri til að sjá að sér og koma til móts við starfsfólk sitt en hingað til hefur samningsviljinn verið enginn,“ sagði Sonja. 

Yfir 1500 BSRB félagar leggja því að óbreyttu niður störf í maí og júní hjá 10 sveitarfélögum. Gangi ekki að semja verður gripið til enn frekari aðgerða. Ljóst er að verkföllin munu hafa veruleg áhrif á leik- og grunnskóla, frístundarmiðstöðvar og hafnarstarfsemi.