Geo Salmo verður aðalstyrktaraðili Ægis

Knattspyrnufélagið Ægir hefur gert samstarfssamning við Geo Salmo ehf en fyrirtækið verður aðalstyrktaraðili Ægis næstu árin.

„Við hjá Ægi finnum strax fyrir miklum stuðningi frá Geo Salmo sem léttir mikið undir við rekstur félagsins og við erum í skýjunum með að undirrita þennan mikilvæga samning fyrir okkar félag. Geo Salmo er nýtt fyrirtæki í sveitarfélaginu og er að hefja mikla uppbyggingu landeldisstöðvar fyrir lax. Það er frábært fólk sem er að stýra Geo Salmo, sem er tilbúið að styðja af krafti við íþróttalífið hér í Þorlákshöfn og hefur mikinn skilning á að starfið þarf alltaf mikinn stuðning, ekki síst fjárhagslegan. Við vonum að þetta samstarf okkar verði afar farsælt til næstu ára,“ segir á Facebook síðu félagsins.

Ægismenn munu því spila sinn fyrsta leik í Lengjudeildinni í kvöld með merki Geo Salmo en þá mæta þeir Fjölni. Leikurinn fer fram á Þorlákshafnarvelli og hefst kl. 19:15.