Jólatónar og ball á Heima Bistró

Á öðrum tónleikum í jólatónleikaröð Hljómlistafélags Ölfuss verður tvöföld ánægja þar sem tvær hljómsveitir stíga á stokk, Þessir tveir og Hinir þrír.

Hinir þrír ríða á vaðið og ætla að flytja jólalög. Þorsteinn Lýðsson syngur, Hermundur Grétar Heiðarsson spilar á gítar og Rúnar Ingi Guðjónsson leikur á bassa.

Eftir hlé stíga Þessir tveir á svið með alvöru sing-along dansiball þar sem þeir ætla að gefa ykkur frí frá jólalögum og spila sígild íslensk sveitaballalög og erlend dægurlög í skemmtilegum flutningi. Allt sem þú vonar að sé spilað á balli heyrir þú hjá Þessum tveim, sama hvort þú viljir sitja og syngja með eða hoppa á dansgólfið og sletta úr klaufunum. Þessir tveir eru Óttar Ingólfsson sem syngur og spilar á gítar og trommarinn Sigfús Ómar Höskuldsson.

Sem fyrr er miðaverð 3500 kr. og fer miðasala fram á tix.is
Takmarkaður miðafjöldi er í sölu.
Miðasala hefst miðvikudaginn 6. des.

https://www.facebook.com/events/893624715560816