Næstkomandi mánudag, þann 8. janúar, opnar ný sýning í galleríinu. Að þessu sinni sýnir Þorlákshafnarbúinn Róbert Karl Ingimundarson blýantsteikningar. Myndirnar á sýningunni eiga sumar fyrirmyndir í raunveruleikanum en aðrar eru hugarsmíð Róberts.
Sýningin stendur út janúarmánuð og opnunin hefst kl. 17. Bæjarbókasafnið býður upp á kaffi og konfekt.
Öll velkomin!