Glódís Rún er íþróttamaður Ölfuss 2023

Glódís Rún Sigurðardóttir hestaíþróttakona var kjörin íþróttamaður Ölfuss árið 2023 við hátíðlega athöfn í Versölum sunnudaginn 11. febrúar.

Glódís Rún Sigurðardóttir ásamt Sölku frá Efri-Brú

Glódís Rún er vel að titlinum komin með langan og farsælan keppnisferil að baki í barna,- unglinga,- og ungmennaflokki. Hún fagnaði heimsmeistara- og Íslandsmeistaratitli á árinu í flokki ungmenna í fimmgangi á Sölku frá Efri-Brú. Hún var í úrslitum og í efstu sætum á öllum stærstu mótum ársins. Hún hefur átt fast sæti í U21 landsliðinu frá því hún hafði aldur til og er nú hluti af Landsliðshópi LH. Glódís Rún er fyrirmynd innan vallar sem utan og nálgast sín verkefni með jákvæðni og hugarfari afreksknapa. 

Eftirtaldir íþróttamenn voru í kjöri til íþróttamanns Ölfuss 2023:

  • Atli Rafn Guðbjartsson fyrir góðan árangur í knattspyrnu
  • Emma Hrönn Hákonardóttir fyrir góðan árangur í körfuknattleik
  • Freyja Ósk Ásgeirsdóttir fyrir góðan árangur í golfi
  • Glódís Rún Sigurðardóttir fyrir góðan árangur í hestaíþróttum
  • Guðbjartur Ægir Ágústsson fyrir góðan árangur í motocrossi
  • Styrmir Snær Þrastarsson fyrir góðan árangur í körfuknattleik
  • Tómas Valur Þrastarson fyrir góðan árangur í körfuknattleik
  • Unnur Rós Ármannsdóttir fyrir góðan árangur í hestaíþróttum
Þau sem voru í kjöri til íþróttamanns Ölfuss 2023: Emma Hrönn Hákonardóttir, Guðbjartur Ægir Ágústsson, Tómas Valur Þrastarson, Glódís Rún Sigurðardóttir, Atli Rafn Guðbjartsson, Unnur Rós Ármannsdóttir og Freyja Ósk Ásgeirsdóttir.

Eftirtaldir íþróttamenn fengu viðurkenningu fyrir þátttöku með landsliðum Íslands á árinu:

  • Styrmir Snær Þrastarson leikmaður með A-landsliði karla í körfuknattleik
  • Emma Hrönn Hákonardóttir leikmaður með U18 og U20 ára landsliðum kvenna í körfuknattleik
  • Tómas Valur Þrastarson leikmaður með U18 og U20 ára landsliði karla í körfuknattleik
  • Hildur Björk Gunnsteinsdóttir leikmaður með U18 og U20 ára landsliði kvenna í körfuknattleik
  • Jóhanna Ýr Ágústsdóttir leikmaður með U16 ára landsliði stúlkna í körfuknattleik
  • Védís Huld Sigurðardóttir knapi með U21 árs landsliðinu í hestaíþróttum

Íþróttamenn sem fögnuðu meistaratitlum á árinu:

  • Glódís Rún Sigurðardóttir Heims- og Íslandsmeistari í fimmgangi í flokki ungmenna í hestaíþróttum
  • Íslandsmeistarar í 12.flokki kvenna í körfuknattleik:
    Emma Hrönn Hákonardóttir
    Hildur Björk Gunnsteinsdóttir
    Gígja Rut Gautadóttir
    Ingunn Guðnadóttir
    Þóra Auðunsdóttir
    Eva Margrét Þráinsdóttir
    Jóhanna Ýr Ágústsdóttir
Íslandsmeistarar í 12.fl. kvenna með Davíð Arnari Ágústssyni þjálfara sínum.