Kór Þorláks- og Hjallasóknar tekur í notkun iPad tölvur

Í vetur sendi kór Þorláks- og Hjallasóknar bréf til fjölda fyrirtækja og félagasamtaka sem hafa tengingu við Þorlákshöfn. Erindið var að leita eftir styrk til kaupa á iPad tölvum fyrir kórfélaga og leysa þar með af hólmi ljósritun á nótum og textum sem kórinn notar við athafnir. Skemmst er frá því að segja að viðbrögðin voru mjög góð og tókst að safna fyrir rúmlega helmingi kostnaðar. Nú eru 24 iPad tölvur komnar í hús.  Það sem vantaði uppá greiddu kórfélagar.  Gengið var til samninga við Árvirkjann á Selfossi og fékk kórinn verulegan afslátt á kaupunum sem gerði þeim kleift að klára verkefnið. 

Eigendur Árvirkjans eru Guðjón Guðmundsson, Haukur Guðmundsson og Sigríður Sveinsdóttir. Kórinn vill koma á framfæri þökkum til þeirra fyrir höfðinglegan styrk til verkefnisins.

Einnig þakkar kórinn eftirtöldum fyrirtækjum fyrir styrkina: 

Lýsi hf. 

Krösus ehf

Þorlákur ehf

Útgerðarfélagið Burst ehf

Auðbjörg ehf

First Water hf