Vindorkufyrirtækið wpd Ísland býður íbúum Ölfuss á opinn kynningarfund þann 6. mars frá kl. 16:00-19:00.
Fundurinn verður haldinn í Versölum í ráðhúsi Ölfuss þar sem fulltrúar wpd Ísland munu veita áhugasömum upplýsingar um fyrirhugaðan vindorkukost og áætlun um áframhaldandi rannsóknir hans. Vindorkukosturinn hefur heitið Þorlákshafnargarður og er fyrirhugaður á Hafnarsandi, norðan suðurstrandarvegs í Ölfusi.
Íbúar eru velkomnir í Versali í spjall þegar þeim hentar en formleg kynning vindorkukostsins hefst kl. 17:00. Sýnt verður frá kynningunni í streymi en skráning í streymið fer fram hér: https://forms.office.com/e/KwTQnMUZKS
Dagskrá fundarinns er eftirfarandi:
Kl. 16-17 Opið hús
Kl. 17-18 Kynning á fyrirhuguðum vindorkukosti
Kl. 18-19 Spurningar úr sal og af netinu, opið hús