- Opna undir merkjum Ísland – Duty Free og aukin áhersla á íslensk vörumerki
- Tímabundnar lokanir í nokkrar klukkustundir að kvöldi 6. maí vegna breytinga
- Fyrsta skrefið í endurhönnun allra verslana sem verður lokið á næsta ári
Fríhafnarverslanirnar á Keflavíkurflugvelli opna undir nýju vörumerki, Ísland – Duty Free, þann 7. maí nk. þegar nýr rekstraraðili tekur við verslununum.
Vegna þessa verður ráðist í breytingar á fríhafnarverslunum í komu- og brottfararsal sem og við brottfararhlið og verður verslununum því lokað í nokkrar klukkustundir á meðan á breytingunum stendur.
Með opnun Ísland – Duty Free mun vöruframboðið taka nokkrum breytingum og vöruúrval aukast en sérstök áhersla verður lögð á fjölbreytt framboð íslenskra vörumerkja þar sem að lágmarki 30% af öllu vöruframboði verður íslenskt.

Verslanir lokaðar tímabundið 6. – 7. maí
Til að tryggja hnökralausa yfirfærslu og nauðsynlegar breytingar á verslunarsvæði munu allar fríhafnarverslanir loka tímabundið frá kvöldi 6. maí til morguns 7. maí nk., samkvæmt eftirfarandi tímasetningum:
- Brottfararverslun: Lokar 6. maí kl. 20:00 og opnar aftur 7. maí kl. 04:00
- Komuverslun: Lokar 6. maí kl. 23:00 og opnar aftur 7. maí kl. 07:00.
- Verslun við brottfararhlið: Lokar 6. Maí kl. 20:00 og opnar aftur 7. maí kl. 9:00.
Á meðan á lokun stendur fá farþegar sem ekki geta verslað í Ísland – Duty Free vegna lokana afhendan 20% afsláttarmiða sem gildir í eitt ár og hægt verður að nota við næstu heimsókn í fríhafnarverslanirnar.
Frank Hansen, framkvæmdastjóri Ísland-Duty Free:
„Þetta eru mjög ánægjuleg tímamót . Við höfum einsett okkur að bjóða viðskiptavinum okkar upp á framúrskarandi úrval af erlendum og íslenskum vörum. Þær breytingar sem við erum að gera á verslununum er eingöngu fyrsta skrefið í vegferð næsta árið, þar sem verslanir okkar í Keflavík verða endurhannaðar með það að markmiði að gera upplifun viðskiptavina sem ánægjulegasta. Þegar verslanir okkar verða komnar í sína endanlegu mynd á næsta ári mun það ekki fara fram hjá nokkrum sem þar verslar að hann er staddur á Íslandi, það mun endurspeglast í hönnun, miklu úrvali af íslenskum vörum og fjölbreyttum tilboðum til okkar viðskiptavina.“
