Í kvöld fer fram sannkallaður toppslagur í Domino’s deildinni í körfubolta þegar Þórsarar fá Stjörnumenn í heimsókn.
Þór vann glæsilegan sigur á KR í Vesturbænum í síðustu umferð og Stjarnan hefur ekki tapað leik það sem af er tímabils.
Ef Þórsarar vinna leikinn í kvöld fer liðið uppfyrir Stjörnuna í 1. sæti deildarinnar. Þá mun stuðningur úr stúkunni skipta Þórsara miklu máli.
Leikurinn hefst klukkan 20 og verður frítt inn fyrir 20 ára og yngri í boði Landsbankans.