Lið Ölfuss mætir liði Fjarðabyggðar í 8-liða úrslitum í spurningaþættinum Útsvar á RÚV í kvöld.
Hið öfluga þríeyki Ölfuss verður á sínum stað. þau Ágústa Ragnarsdóttir, Árný Leifsdóttir og Hannes Stefánsson.
Þátturinn hefst klukkan 20:15 og verður í beinni útsendingu á RÚV en áhugasamir geta verið áhorfendur í sal.