Á fundi bæjarstjórnar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt samhljóða að sveitarfélagið Ölfus myndi kaupa 9% hlut í leikskólum Hveragerðis.
Ölfus mun greiða Hveragerði 32 milljónir króna fyrir hlutinn. Með kaupunum munu börn búsett í dreifýli Ölfuss njóta sama aðgengis að leikskólum Hveragerðis og börn með lögheimili í Hveragerði.
Á fundinum voru einnig lögð fram drög að samstarfssamningi milli Hveragerðis og Ölfuss vegna skólamála sem taka á gildi frá og með 1. janúar 2015.