Þór fær Fjölni í heimsókn í Icelandic Glacial höllina í kvöld 4.desember kl 19:15.
Leikurinn er liður í 9.umferð Dominos deildarinnar í körfubolta.
Í síðustu umferð töpuðu Þór fyrir Stjörnunni í hörkuviðureign í Ásgarði 85-79, og Fjölnir vann Keflavík í fyrsta sinn í 8 ár með 93-81, sigri í Dalhúsum.
Fyrir leikinn í kvöld er Þór í 5-7. sæti með 8 stig og Fjölnir í 9-11.sæti með 4 stig.
Fyllum höllina og styðjum strákana í baráttunni í deildinni!
Áfram Þór!