Markaðs- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði Ölfuss.
Markmið sjóðsins er:
- Að efla hverskonar menningarstarfsemi og list í sveitarfélaginu.
- Að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði lista- og menningarmála er tengjast sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.
Upplýsingar um reglur sjóðsins er að finna á vef sveitarfélagsins. Hægt er að nálgast umsóknarblöð á vef sveitarfélagsins.
Umsóknarfrestur er til 8.nóvember 2019 og skulu umsóknir berast til sviðsstjóra fjármála-, stjórnsýslu- og menningarsviðs í gegnum umsóknareyðublaðið á vef sveitarfélagsins eða í tölvupósti sandradis@olfus.is.
Nánari upplýsingar veitir Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri í síma 480 3808 eða tölvupósti sandradis@olfus.is.