Íslandsmeistarar Þórs unnu öruggan sigur á Stjörnunni í úrvalsdeild karla í körfubolta í Þorlákshöfn í gærkvöldi en frábær vörn í seinni hálfleik skóp sigurinn.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Þórsarar lögðu grunninn að sigrinum með góðum þriðja leikhluta, sem liðið vann með tíu stigum. Stjarnan náði ekki að saxa á forskotið og öruggur 88-75 sigur Þórsara í höfn.
Luciano Massarelli kom af bekknum og átti frábæran leik og skoraði 30 stig. Ronaldas Rutkauskas var flottur í seinni hálfleik og skoraði 15 stig og tók 11 fráköst.
Með sigrinum fóru Þórsarar upp að Njarðvík í öðru sæti en bæði lið eru með 18 stig, tveimur minna en topplið Keflavíkur en Þór og Njarðvík eiga leik til góða á Keflavík.
Tölfræði Þórs: Luciano Massarelli 30/5 stoðsendingar, Ronaldas Rutkauskas 15/11 fráköst/6 stoðsendingar, Daniel Mortensen 14/12 fráköst, Davíð Arnar Ágústsson 11, Glynn Watson 11/5 fráköst/6 stoðsendingar, Ragnar Örn Bragason 7.
Næsti leikur Þórsarar er á mánudagskvöld á Ísafirði þegar Vestri verður sóttur heim.