Nú þegar lokadagur kosningabaráttunnar er runninn upp viljum við á D-listanum fyrst og fremst þakka fyrir þær góðu móttökur sem við höfum fengið síðustu vikur. Við höfum haldið fjölda funda og viðburða þar sem mörg hundruð íbúa hafa mætt og gefið sér tíma til að ræða við okkur um samfélagið okkar, framtíðina og þau verkefni sem framundan eru. Við finnum fyrir jákvæðni og meðbyr með okkar áherslum og stefnumálum og erum afar þakklát fyrir hvatninguna og stuðninginn.
Frá upphafi höfum við lagt áherslu á skemmtilega, málefnalega og uppbyggilega baráttu. Við höfum viljað útskýra þá framtíðarsýn og metnað sem við höfum fyrir sveitarfélagið okkar; hvernig við viljum halda áfram að byggja upp sterkt og fjölbreytt samfélag með öflugri þjónustu, blómlegu atvinnulífi og framúrskarandi lífsgæðum fyrir okkur öll.
Það er mikið verkefni og mikil ábyrgð að stýra sveitarfélagi. Það krefst auðmýktar gagnvart hlutverkinu, virðingar fyrir ólíkum sjónarmiðum og vilja til að vinna fyrir alla íbúa. Þannig viljum við áfram nálgast verkefnið.
Við vitum að ýmislegt sem hefur verið gert eða ekki gert er umdeilt. Það er eðli starfs bæjarfulltrúa að þurfa oft á tíðum að taka erfiðar ákvarðanir og vega ólík sjónarmið hvert gegn öðru. Stundum eru mistök gerð. Þá skiptir máli að staldra við, endurskoða, leiðrétta og læra.
Við munum áfram leggja okkur fram við að hlusta á raddir bæjarbúa og taka mið af þeim sjónarmiðum sem íbúar hafa fram að færa. Við teljum gott samtal, samvinnu og gagnkvæmt traust lykilinn að áframhaldandi farsælli uppbyggingu samfélagsins.
Við hvetjum ykkur öll til að nýta kosningaréttinn og mæta á kjörstað á morgun. Lýðræðið verður sterkast þegar við tökum öll þátt. Við óskum eftir umboði kjósenda til að halda áfram af ábyrgð með hagsmuni samfélagsins alls að leiðarljósi.
Frambjóðendur D-listans í Ölfusi

