Í byrjun mánaðarins fjölluðum við hjá Hafnarfréttum um þá garða sem hlutu umhverfisverðlaunin í ár. Fimm garðar voru tilnefndir í þéttbýli og fjórir í dreifbýli. Hér að neðan má sjá umsagnir um garðana og myndir af vinningsgörðunum.
Þéttbýli
- Eyjahraun 11: Jóhanna M Hjartardóttir og Ragnar M Sigurðsson.
Stór og fallegur garður með fjölbreyttu tegundaúrvali. Skemmtilegt samspil á milli vatns og gróðurs. - Finnsbúð 9: Sigríður Sveinsdóttir og Sigurður Bjarnason
Einstaklega fallegur, vel hirtur og snyrtilegur garður. Skemmtilegur og vel skipulagður. Aðkoman er mjög falleg. Um er að ræða garð í nýju hverfi sem er vel uppbyggður og snyrtilegur. - Hafnarberg 10: Ása Bjarnadóttir og Hannes Gunnarsson
Fallegur garður með fjölbreyttum gróðri - Heinaberg 16: Halla Kjartansdóttir og Erlendur Jónsson
Mjög snyrtilegur og vel hirtur garður. - Oddabraut 18: Agnes Guðmundsdóttir og Þórður Sveinsson
Garðurinn er í gamla hverfinu og er flottur og vel snyrtur.
Ákveðið var að velja Finnsbúð 9 sem fallegasta garðinn í þéttbýli.
Dreifbýli
- Bræðraból: Sigurbjörg Jónsdóttir og Rafn Haraldsson
Mjög snyrtilegt og falleg aðkoma. - Gljúfur: Rósa Finnsdóttir og Jón Hólm Stefánsson
Glæsileg aðkoma og flott bæjarstæði. - Klettagljúfur 11: Jóhanna Sigurey Snorradóttir og Árni Sveinsson
Mjög fallegur og snyrtilegur. Þarna er nýr garður sem er í uppbyggingu og hefur tekist vel til. - Kotströnd II: Björg Halldórsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson
Flottur garður með miklum og fallegum gróðri.
Ákveðið var að velja Klettagljúfur 11 sem fallegasta garðinn í dreifbýli.