Jón Guðni Fjóluson og Rúnar Már Sigurjónsson, leikmenn Sundsvall í Svíþjóð, voru kosnir bestu leikmenn liðsins af staðarblaðinu Sundsvall Tidningen. Þetta er því annað árið í röð sem blaðið velur Jón Guðna sem besta mann liðsins.
Blaðið gaf leikmönnum liðsins einkunnir eftir hvern leik á tímabilinu og skoruðu íslendingarnir hæst allra þegar upp var staðið ásamt Joakim Nilsson.
Jón Guðni átti frábært tímabil í vörn Sundsvall en liðið fór upp í úrvalsdeild á síðustu leiktíð. Liðið endaði í 12. sæti úrvalsdeildarinnar og náði að bjarga sér frá falli.