Aðalfundur Bókabæjanna austanfjalls 2016 verður haldinn í Listasafni Árnesinga í Hveragerði, fimmtudaginn 7. apríl 2016 og hefst hann kl. 18:00.
Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar lögð fram.
- Reikningar lagðir fram til samþykktar.
- Lagabreytingar.
- Ákvörðun félagsgjalds.
- Kosning í stjórn og kosning tveggja skoðunarmanna.
- Verkefni framundan
- Önnur mál.
Við vekjum athygli á því að kjósa þarf einn stjórnarmann, þannig að þeir sem hafa áhuga á að taka sæti í stjórn eru vinsamlegast beðnir um að mæta og/eða hafa samband fyrir fundinn.
Í fundarhléi verður hægt að kaupa súpu og brauð á 800 kr.
Allir eru velkomnir á fundinn og er tilvalið að nota tækifærið og skoða sýningar þær sem nú standa yfir í Listasafninu.
Stjórn Bókabæjanna austanfjalls
bokaustanfjalls@gmail.com