Viltu vinna í íþróttamiðstöðinni?

sundlauginÍþróttamiðstöðin í Þorlákshöfn  óskar eftir starfsmanni í 100% stöðu!

(karlmaður vegna baðvörslu í karlaklefa)

Starfið er unnið í vaktavinnu sem felst m.a. í baðvörslu, gæslu við íþrótta, líkamsræktar- og sundlaugarmannvirki, tjaldstæði, þrif, afgreiðslu og umsjón og eftirlit  með tækjabúnaði í tækjarýmum.

Hæfniskröfur:

Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á börnum og unglingum, auk áhuga og skilning á íþrótta – og æskulýðsstarfi. Um framtíðarstarf er að ræða.

Laun samkv. launatöflu FOSS.

Skilyrði fyrir ráðningu er að starfsmaðurinn standist hæfnispróf sundstaða.

° Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni.

° Umsóknarfrestur er til 1. júlí.

° Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna.

 

Nánari upplýsingar gefur:

Íþrótta – og æskulýðsfulltrúi í síma: 480 – 3890 og 480-3891.