Þórsarar semja við Mike Cook

Meistaraflokkur Þórs hefur ráðið til sín Bandarískan leikmann að nafni Mike Cook fyrir tímabilið sem er handan við hornið en heimasíða Þórs, thorkarfa.com, greinir frá.

Cook kemur frá Fíladelfíu eins og svo margir amerískir leikmenn Þórs undanfarin ár. Hann er 29 ára og hefur undanfarin ár leikið mest í heimalandinu fyrir utan 3 vikur í Katar síðasta tímabil. Hann kemur frá Pittsburgh háskólanum og var þar með um 10 stig á leik.

Kappinn er 192 cm á hæð (þangað annað kemur í ljós) og vegur um 100 kg. Hann á að vera mjög fjölhæfur og geta leikið 3-4 stöður á vellinum. Það er vonandi að þessi reynslubolti reynist ungu Þórsliði vel í vetur en eins og flestir vita er leikmannahópurinn töluvert breyttur frá síðasta vetri.