Methagnaður GÞ og árgjöldin þau lægstu á 18 holu velli

gudmundur01Rúmlega þriggja milljón króna hagnaður var á Golfklúbbi Þorlákshafnar á síðasta ári, en aðalfundur klúbbsins var haldinn fimmtudaginn 22. janúar síðastliðinn. Hagnaður klúbbsins hefur aldrei verið meiri þrátt fyrir að árgjöld klúbbsins séu þau lægstu á 18 holu velli á Íslandi. Ein af megin ástæðunum fyrir þessum hagnaði er aukinn fjöldi höfuðborgarbúa sem sækja völlinn heim á hverju sumri, en Þorlákshafnarvöllur þykir einn sá besti á landinu.

Aðalfundurinn var með hefðbundnu sniði, Guðmundur K. Baldursson formaður GÞ fór yfir skýrslu stjórnar og ársreikning klúbbsins og mikil ánægja á adalfundur01meðal fundargesta var með skýrsluna og ársreikninginn. Aðeins ein breyting var á stjórn klúbbsins, en Hákon Hjartarson gaf ekki kost á sér sem varamaður og í hans stað var Óskar Logi Sigurðsson kosinn. Árgjöld voru ákveðin þau sömu og á síðasta ári, en árgjöldin er þau lægstu sem þekkjast á Íslandi og sérstaka athygli vekur lágt nýliðagjald. Nýliðar borga aðeins 46 þúsund krónur fyrir fyrstu tvö árin í klúbbnum.

Guðlaugur Þ. Sveinsson, fyrrum formaður GÞ hlaut heiðursviðurkenningu golfklúbbsins fyrir árið 2014, en ákveðið var að veita honum viðurkenninguna fyrir frábært starf í þágu klúbbsins mörg undanfarin ár.

Unnið hefur verið að breytingum á vellinum að undanförnu og áfram verður unnið næstu tvö sumur að þeim breytingum sem í gangi eru vegna aflagningar tveggja brauta. Samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir að ljúka sem mest af áfanga 1 á þessu ári.

Það er því óhætt að segja að framundan séu spennandi tímar hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar og vonast er til að kylfingar klúbbsins sem og aðrir fái gott og skemmtilegt golfsumar.

Eftirfarandi er verðskrá GÞ en eins og fyrr segir er hún sú lægsta á 18 hólu velli á Íslandi.

  • Fullt gjald: 46.000 kr.
  • Makar og 67 ára og eldri: 23.000 kr.
  • Unglingar 20 – 22 ára: 23.000 kr.
  • Nýliðar 1. ár: 21.000 kr.
  • Nýliðar 2. ár: 25.000 kr.
  • 19 ára og yngri: Frítt í klúbbinn