Strætó stoppar ekki um páskana

streato_thorlakshofnStrætó mun aka alla páskadagana. Yfir hátíðisdagana verður ekið samkvæmt hefðbundinni sunnudags áætlun.

Á skírdag, fimmtudaginn 24. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Föstudaginn langa, 25. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Laugardaginn 26. mars verður ekið samkvæmt hefðbundinni laugardagsáætlun. Á páskadag, sunnudaginn 27. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Annan í páskum, mánudaginn 28. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.

Allar nánari upplýsingar má fá á www.straeto.is