Kjörskrá vegna alþingiskosninganna 29. október

dólusKjörskrá fyrir Sveitarfélagið Ölfus vegna alþingiskosninganna 29. október 2016 mun liggja frammi á bæjarskrifstofum Sveitarfélagsins Ölfuss að Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn frá og með 19. október 2016 til kjördags á opnunartíma skrifstofunnar frá kl. 08:00-16:00 alla virka daga.

Þá er bent á upplýsingavef innanrikisráðuneytisins www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá.

Bæjarstjórinn í Sveitarfélaginu Ölfusi.