Mikið um að vera hjá Café Sól í desember

cafesol01Mikið verður um að vera hjá Café Sól í desember og mun öll innkoma af ódýra horninu í desember renna til Líknarsjóðs Þorlákskirkju. Þetta kemur fram í auglýsingu sem send var út frá fyrirtækinu í dag en auglýsingun má nálgast í heild hér að neðan:

Í desember verður sérstök dagskrá allan mánuðinn: 1. desember verður opið til kl. 21:00 og boðið verður uppá lifandi tónlist, kynningu á íslensku handverki, jólaglögg og smákökur. Ýmis tilboð – heitt súkkulaði með rjóma eða kaffi og kökusneið á 790 kr.

Lukkuleikur

Ef verslað er fyrir meira en 1000 kr. fer viðskiptavinur í lukkupott Café Sól – dregið verður úr pottinum á föstudögum fram að jólum 9., 16. og 23. des.

  • Alla mánudaga: vínarbrauð á 600 kr., jólakökur á 650 kr.
  • Alla miðvikudaga: öll brauð á 450 kr., stór boost á 900 kr.
  • Alla föstudaga: hafraklattar með súkkulaði á 150 kr.
  • Alla laugardaga: öll rúnnstykki á 100 kr.
Vekjum athygli á eftirfarandi vörum og þjónustu
  • Úrval af nýbökuðu brauði og öðru bakkelsi
  • Bjóðum upp á pöntunarþjónustu á helstu vörutegundum Café Sól
  • Tökum að okkur veitingar í minni veislur
  • Minnum á okkar góðu brauðtertur
  • Nammi- og hnetubarinn – 50% afsláttur á laugardögum
  • Boost-barinn – ávallt opinn með ferska og hressandi drykki
  • Hrísgrjón, sósur, núðlur, vorrúlludeig o.fl. asískar gæðavörur á góðu verði

Minnum á ódýra hornið – öll innkoma þess í desember rennur til Líknarsjóðs Þorlákskirkju.

Opnunartími:

  • Mánudaga – föstudaga: 07:30-17:00
  • Laugardaga: 9:00-16:00

Sími: 486-1898/898-8998
café.sol@simnet.is