Íbúafundur vegna skipulagsmála í Þorlákshöfn

Mynd: Baldvin Agnar Hrafnsson

Skipulags- og byggingasvið Ölfuss boðar til íbúafundar vegna skipulagsmála innan þéttbýlis Þorlákshafnar í Ölfusi. Fundurinn er opinn og ætlaður öllum þeim er vilja kynna sér eða ræða skipulagsáform sveitarfélagsins.

Fundurinn verður haldinn í Ráðhúskaffi að Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, þriðjudaginn 22. október kl. 17.30-19.30.

Þéttbýlisuppdráttur aðalskipulags Ölfuss.

Mál sem tekin verða fyrir

Skipulagsmál í vinnslu:

  • Heildarendurskoðunar aðalskipulags Ölfuss, markmiðasetning.
  • Áform um nýja íbúðabyggð austan Ölfusbrautar, rammaskipulag.
  • Stækkun Egilsbrautar 9 og fjölgun íbúða við Sunnubraut.
  • Nýtt deiliskipulag fyrir kirkjugarð Þorlákshafnarkirkju.
  • Endurskoðun og stækkun athafnarsvæðis við Unu- og Vesturbakka.
  • Staðarval fyrir nýtt flokkunar- og móttökusvæði.

Mál til kynningar:

  • Stækkun verslunarhúsnæðis og íbúðauppbygging að Selvogsbraut 41.
  • Íbúðauppbygging og aðalskipulagsbreyting að Reykjabraut 2.
  • Hugmyndir að framtíðaruppbyggingu íþróttasvæðis í Þorlákshöfn.
  • Stækkun byggðar til vesturs og lagning á nýjum rafstreng.

Eftir hvert mál verða spurningar og umræður. Umsjónarmaður fundar er Kristinn Pálsson, verkefnastjóri skipulagsmála. Nánari upplýsingar eða ábendingar: kristinn@olfus.is

Ath. dagskrámál verða ekki endilega flutt í þeirri röð sem hér er birt.

Skipulags- og byggingasvið Ölfuss.